Meira af fiski af strandveiðibátum á markaði

121
Deila:

Fyrstu viku strandveiða lauk í gær.  Meðalverð á óslægðum þorski á fiskmörkuðum var 249 kr/kg á þessum fyrstu 4 dögum strandveiða í ár.   Það er 20 krónum hærra verð en fékkst á sama tímabili í fyrra.  Þegar tekið er tillit til stöðu evrunnar gagnvart krónu er hækkunin milli ára um 14%.

Heildarmagn sem selt var á tímabilinu 3. – 6. maí var 655 tonn sem er veruleg aukning frá sama tíma [4. – 7. maí] í fyrra sem skilaði 438 tonnum samkvæmt frétt á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda.

Grafið sýnir magn og verð á fyrstu viku strandveiða 2021.

 

 

Deila: