Mjög góð veiði í Þverálnum

137
Deila:

Togarar Fisk Seafood á hafa verið að gera það gott undanfarna daga. Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki.  Heildarmagn afla um borð var um 220 tonn.  Uppistaða aflans var þorskur.  Heimasíða Fisk Seafood  sló á þráðinn til Bárðar Eyþórssonar skipstjóra:

„Við vorum að veiðum í fjóra sólarhringa, byrjuðum á Halanum fyrstu tvo dagana í rólegri veiði.  Færðum okkur yfir á Þverálinn þar var mjög góð veiði.  Veðrið í túrnum var gott“ segir Bárður.

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði.  Heildarmagn afla um borð var um 71 tonn, uppistaða aflans var þorskur, skarkoli og ýsa.  Sigurborg var meðal annars á veiðum í Nesdýpi og það var líka Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði.  Aflinn var um 64 tonn, uppistaða aflans var skarkoli, þorskur og ýsa.  Farsæll var meðal annars á veiðum í Nesdýpi.

Deila: