Ný Cleopatra 42 til Álasunds

94
Deila:

Stein Magne Hoff útgerðarmaður frá Álasundi í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan bát frá Bátasmiðjunni Trefjum ehf. í Hafnarfirði. Báturinn er af gerðinni Cleopatra 42.

Stein Magne verður sjálfur skipstjóri bátnum, en tveir verða í áhöfn bátsins. Nýi báturinn heitir M/S Tare. Báturinn er 12.5 metrar á lengd og mælist 18 brúttótonn.

Aðalvélar bátsins eru tvær af gerðinni Yanmar 6LYA2-STP, 440hk/ 3300omr tengdar ZF 286IV gírum.

Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno og Olex.

Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins.

Báturinn er útbúinn til línuveiða. Báturinn verður einnig notaður til sjóstangveiði og kennslu í Sjómannaskóla.

Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 19 380 lítra kör í lest. Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni. Svefnpláss er þrjá í lúkar. Salerni með sturtu.
Báturinn er kominn til Noregs

 

Deila: