Nýir eigendur taka við Norðanfiski

548
Deila:

Þann 29. maí sl. var skrifað undir kaupsamning á milli Brim hf. og hóp fjárfesta sem keyptu allt hlutafé í Norðanfiski ehf. Kaupsamningurinn var undirritaður með fyrirvara um áreiðanleikakönnun, en búið er að uppfylla alla fyrirvara og var því formlega gengið frá viðskiptunum.

Norðanfiskur ehf. hefur starfsstöð sína við Vesturgötu 5 á Akranesi og eru starfsmenn um þrjátíu talsins. Norðanfiskur sérhæfir sig í framleiðslu, sölu og dreifingu á sjávarfangi til veitingahúsa á innanlandsmarkaði ásamt sölu neytendapakkninga í verslunum um allt land. Kaupandi fyrirtækisins er nýtt eignarhaldsfélag í eigu tíu aðila sem allir eiga rætur á Akranesi auk framkvæmdastjóra Norðanfisks, Sigurjóns Gísla Jónssonar, sem áfram mun stýra fyrirtækinu. Formaður stjórnar verður Inga Ósk Jónsdóttir en hún og eiginmaður hennar Gísli Runólfsson eru stærstu hluthafar í eignarhaldsfélaginu sem kaupir. Auk framangreindra hluthafa koma að nýju eignarhaldsfélagi: Bifreiðastöð ÞÞÞ, Eignarhaldsfélag VGJ í eigu hjónanna Eiríks Vignissonar og Ólafar Ólafsdóttur, hjónin Karen Jónsdóttir og Kristján Baldvinsson, Gestur Breiðfjörð Gestsson auk fjögurra jafnaldra úr árgangi 1971, þeirrra Sævars Freys Þráinssonar, Harðar Svavarssonar, Jóns G Ottóssonar og HH verktaks sem er í eigu Hannesar Birgissonar og Hjartar Lúðvíkssonar.

Fram kom við undirritun samningsins að ráðgjafar í söluferlinu hafi verið Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri, KPMG og Örn Gunnarsson hjá Lex lögmannsstofu. Íslensk verðbréf var auk þess ráðgjafi og stýrði söluferlinu fyrir hönd Brims.

Deila: