Segir „alveg á hreinu“ að gögnin sem Samherji segir fölsuð hafi verið til

96
Deila:

Fyrrverandi formaður Sjómannasambandsins segir í samtali á visir.is ómerkilegt hvernig Samherji ræðst að fréttamanni Ríkisútvarpsins í myndbandi á Youtube. Hann hafi sjálfur séð þau gögn sem sögð hafa verið fölsuð í myndbandinu. Fyrrverandi formaður Fé­lags vél­stjóra og málm­tækni­manna tekur undir það en þeir sátu báðir í úrskurðarnefnd útgerðar- og sjómanna.

Samherji birti í gær myndbandið „Skýrslan sem aldrei var gerð“ á Youtube þar sem Helgi Seljan fréttamaður og Ríkisútvarpið eru sökuð um að hafa falsað gögn við gerð Kastljóssþáttar í mars 2012. Þar var fyrirtækið sakað um selja dótturfélagi sínu í Þýskalandi karfa á undirvirði og þannig brotið gjaldeyrislög. Ríkisútvarpið stendur við umfjöllunina og hefur gefið út að skýrslan sem vísað er til í umfjölluninni í Kastljósi 2012 sé til.

Sævar Gunnarsson, fyrrverandi formaður Sjómannasambandsins, sat í úrskurðarnefnd útgerðar-og sjómanna frá 1998 til 2014 og segist hafa séð sömu gögn og Helgi vísar til í umræddum Kastljóssþætti.

„Við fengum þessi gögn, það er alveg á hreinu. Í úrskurðarnefndinni þar sátu fulltrúar útgerðamanna og sjómanna,“ segir Sævar.

Samkvæmt tölvupósti frá deildarstjóra Verðlagsstofu skiptaverðs var engin skýrsla gerð í karfarannsókn stofnunarinnar. Sævar segir það rétt, upplýsingarnar hafi komið fram á minnisblöðum.

Voru upplýsingarnar settar fram í skýrsluformi, minnisblöðum eða öðrum gögnum?

„Allt saman meira og minna í minnisblöðum,“ segir Sævar. Það hafi engar eiginlegar skýrslur verið gerðar um þessi mál, það hefði þurft heljarinnar mannskap til þess.

Sævar er ósáttur við umfjöllun Samherja á Youtube. „Mér finnst þetta ómerkilegt, fyrir neðan allar hellur í raun og veru að ráðast á manninn en ekki efnið. Þeir [Samherji] hljóta að geta fengið þessar upplýsingar hjá úrskurðarnefndin. Þau eru til og þetta er opinber nefnd.“

Seðlabankinn gerði húsleit hjá Samherja sama dag og Kastjósþátturinn fór í loftið og fór í kjölfarið í mál við fyrirtækið. Samherji var á endanum sýknaður í Hæstarétti.

„Hann var ekki sýknaður efnislega,“ segir Sævar. „Það var „lapsus“ í málinu sem gerði það að verkum að hann var sýknaður eins og ég las það, en ég er ekki lögfróður maður.“

Guðmundur Ragnarsson, fyrr­ver­andi formað­ur Fé­lags vél­stjóra og málm­tækni­manna, sat einnig í úrskurðarnefndinni þegar málið kom upp og segist hafa séð sömu gögn og Helgi Seljan vísaði til í Kastljóssþættinum.

„Það koma upp mál þar sem verðlagningin er að okkar viti ekki rétt. Þá voru fyrirtækin fengin til að lagfæra eða leiðrétta það. Það var búið að gera athugasemdir við Samherja um þessa verðlagningu á karfa. Það er ekkert leyndarmál,“ segir Guðmundur í samtali við visir.is.

Og gerðu þeir lagfæringar í framhaldinu?

„Nei, það var kannski ástæðan fyrir því að við vorum orðnir þreyttir.“

 

Deila: