Tveir bátar í vanda, björguðust báðir

97
Deila:

Leitar og björgunarþyrla danska flughersins var kölluð út auk björgunarskipsins Gunnbjargar frá Raufarhöfn vegna 18 tonna línubáts sem varð vélarvana 3,5 sjómílur norður af Langanesi í gær. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk boð um vanda bátsins laust eftir klukkan 13:00. Þyrla danska flughersins var að koma inn til lendingar á Keflavíkurflugvelli þegar hún var kölluð út. Þyrlusveitin danska hélt fyrst til Akureyrar og tók þar eldsneyti. Að því búnu fór hún rakleiðis í átt að Langanesi. Fimm voru um borð í línubátnum og var rek bátsins rúm sjómíla á klukkustund í átt að landi.

Danska björgunarþyrlan og björgunarskipið Gunnbjörg voru komin að bátnum um klukkan 15:00. Gunnbjörg var komin með línubátinn í tog fimm mínútum síðar og þegar ástandið var orðið tryggt gat þyrla danska flughersins snúið aftur til baka. Gunnbjörg dró línubátinn til Raufarhafnar.

Þetta var í annað sinn sem stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kallaði út þyrlu vegna báts í vanda í gær. Fyrr um daginn var óskað eftir aðstoð björgunarsveitar og áhafnarinnar á TF-EIR vegna vélarvana báts við Ólafsfjarðarmúla. Alls var tilkynnt um fimm vélarvana báta til stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar það sem af var degi í gær

Sjósókn umhverfis landið var góð það í gær. 750-800 skip og bátar voru á miðunum þegar mest var.

Björgunarþyrla danska flughersins verður til taks ákveðna daga hér á landi til 17. júlí.

Deila: