Veður og óvissa á mörkuðum halda skipum í höfn

206
Deila:

Ísfisktogarar Bergs-Hugins í Vestmannaeyjum, Bergey VE og Vestmannaey VE, komu til löndunar sl. miðvikudag. Bæði skipin voru með fullfermi af stórum og fallegum ufsa. Vestmannaey fékk aflann á Selvogsbankanum en Bergey rétt fyrir austan Eyjar.

Núna liggja bæði skipin í höfn og er ástæðan tvíþætt; annars vegar slæm veðurspá fram yfir helgi og hins vegar sú óvissa sem ríkir á ferskfiskmörkuðum vegna Covid 19. Hvað veðrið varðar þá eru tvær lægðir væntanlegar um helgina og ölduspá er afar slæm. Hvað markaðsaðstæðurnar varðar þá hefur eftirspurn eftir ferskum fiski á hefðbundnum mörkuðum hrunið. Verslanir vilja helst frosna vöru og veitingahús eru flest lokuð.

Arnar Richardsson, rekstrarstjóri Bergs-Hugins segir í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar, að langmest af fiskinum sem skipin hafa borið að landi tvær síðustu vikurnar hafi farið til vinnslu hér heima og er hann unninn í Vestmannaeyjum, Seyðisfirði, Neskaupstað, Dalvík og Akureyri. Nú er beðið og fylgst með stöðunni á mörkuðunum erlendis. Spurningin er hvernig hún verður eftir helgi. Bergur-Huginn sendi reyndar út einn lítinn gám til Englands í vikunni en það var fyrst og fremst gert til að viðhalda tengslum.

Ljósmynd Guðmundur Alfreðsson.

Deila: