Venus í vélarupptekt

91
Deila:

Vinna er hafin við reglubundna upptekt á aðalvél uppsjárveiðiskipsins Venusar NS og er verkið unnið í Reykjavík. Venus kom til Reykjavíkur eftir að hafa landað kolmunna á Vopnafirði. Bergur Einarsson skipstjóri segir lítinn kraft vera í kolmunnaveiðunum og vertíðin í færeysku lögsögunni sé að fjara út.
,,Við vorum mest norðaustur af Færeyjum í þessum túr. Einhverjir voru fyrir sunnan okkur en aflinn var ekki betri þar. Ef menn voru heppnir þá gátu þeir hangið á 200 tonnum af kolmunna á sólarhring. Annars var aflinn yfirleitt minni. Við vorum t.a.m. 12 daga á veiðum og aflinn var rúm 2.200 tonn,” segir Bergur í samtali við heimasíðu Brims, en hann telur að vertíðinni í færeysku lögsögunni sé lokið.
Sem fyrr segir er Venus nú í vélarupptekt og verður það verkefni næstu daga.
,,Við verðum svo tilbúnir í makrílvertíðna,” segir Bergur Einarsson.

 

 

Deila: