Verðmæti útfluttra sjávarafurða eykst

96
Deila:

Verðmæti útfluttra sjávarafurða á síðasta ári var 260 milljarðar króna sem er 8,5% vöxtur frá árinu áður. Var verðmæti þeirra 40,6% alls vöruútflutnings frá landinu, en alls voru vörur fluttar utan fyrir 641 milljarð króna. Iðnaðarvörur, fyrst og fremst ál, skiluðu tæplega helmingi verðmætisins.

Þessi aukning verðmæta er til dæmis athyglisverð fyrir þær sakir að engin loðnuvertíð var á síðasta ári. Mest var aukning á ferskum fiski og frystum flökum.

Deila: