Viktoría Alfreðsdóttir ráðin svæðissölustjóri fyrir Rússland og Asíu hjá Skaginn 3X

280
Deila:

Skaginn 3X hefur ráðið Viktoríu Alfreðsdóttur í starf svæðissölustjóra fyrir Rússland og Asíu. Viktoría
er fædd í Ukraínu en hefur verið búsett á Íslandi um 15 ár. Hún talar því reiprennandi ukraínsku og
íslensku ásamt ensku og rússnesku.
Ráðning Viktoríu kemur í kjölfar ákvörðunar Skagans 3X að efla sölunet fyrirtækisins í Rússlandi og á
Asíumarkaði. Hún mun vinna náið með Pétri Jakob Pétursyni sölustjóra á fyrrnefndum
markaðssvæðum.

Ör vöxtur í sölu í Rússlandi og Asíu.
Ör vöxtur hefur orðið í sölu fyrirtækisins á undanförnum misserum til þessara svæða. Má þar nefna
að Skaginn 3X lauk nýverið bygginu og uppsetningu á uppsjávarverksmiðju í Rússlandi fyrir JSC
Gidrostroy á Shikotan sem er ein Kúrileyja austast í Rússlandi. Fyrirtækið er einnig að vinna að smíði
fiskvinnslu fyrir V.I Lenin í Petropavlosk á Kamtchaka, ásamt því að vinna að hönnun, smíði og
uppsetningu á fiskvinnslubúnaði í fullkomið vinnsluskip fyrir sama fyrirtæki.
Góð viðbót í teymið
Viktoría er menntaður viðskiptafræðingur frá HR og er einnig með mastersgráðu í
vörumerkjastjórnun frá Polimoda í Flórens á ítalíu.
„Viktoría er góð viðbót í söluteymi Skagans 3X. Það er ánægjulegt að fá nýjan starfsmann með
ferskar hugmyndir ” segir Pétur Jakob Pétursson. „Vegna árangursríkra verkefna okkar í Rússlandi
hefur eftirspurn eftir vörum og lausnum aukist nokkuð bæði frá rússneska og asíska markaðnum.
Staðbundin þekking og tungumálakunnátta Viktoríu sem og sterkur bakgrunnur hennar í
markaðsgreiningu mun án efa opna fyrirtækinu margar dyr á þessum mörkuðum. “

Deila: