Viljayfirlýsing vegna vinnslu á þangi undirrituð

279
Deila:

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra undirritaði í dag viljayfirlýsingu Stykkishólmsbæjar, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, Veitna og Acadian Seaplants um samstarf um sjálfbæra atvinnu- og innviðauppbyggingu í Stykkishólmi í tengslum við fyrirhugaða nýtingu þangs í Breiðafirði. Með viljayfirlýsingunni er stoðum rennt undir rannsóknir og vinnslu þangs í Stykkishólmi og verður unnið að því að nýta fyrirliggjandi tækifæri til atvinnu- og verðmætasköpunar á grunni sjálfbærrar nýtingar auðlinda.

 „Þetta samkomulag er enn eitt dæmið um þau fjölbreyttu tækifæri sem er verið að sækja víða um land um þessar mundir. Hér er nýsköpun í forgrunni og þar liggja tækifærin. Oft í tengslum við auðlindanýtingu eins og í þessu tilfelli. Púslin eru að raðast rétt upp á mörgum stöðum núna og þetta er mjög ánægjulegt dæmi um það,“ segir Þórdís Kolbrún.

 Bæjarstjórn Stykkishólms hefur átt í formlegum viðræðum við kanadíska félagið, Acadian Seaplants Limited um vinnslu þangs í Stykkishólmi frá árinu 2019. Acadian Seaplants hyggst stofna íslenskt dótturfyrirtæki til þess að þróa alhliða miðstöð þörungavinnslu í suðurhluta Breiðafjarðar með aðsetur í Stykkishólmi. Lögð verður áhersla á vísindalega nálgun við nýtingu auðlindarinnar með það að markmiði að fullnýta hráefnið með sem minnstum áhrifum á umhverfið samhliða sem mestum svæðisbundnum efnahagslegum ávinningi. Undir samkomulagið undirrita ráðherra, Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar, JP Deveau, forstjóri Acadian Seaplants Limited og Jóhannes Þorleiksson, forstöðumaður hjá Veitum.

Á myndinni eru Jóhannes Þorleiksson, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Jakob Björgvin Jakobsson ásamt Jean-Paul Deveau.

 „Við fögnum þessum áfanga þar sem allir hagaðilar eru sammála um mikilvægi þess að vinna saman að því að nýta fyrirliggjandi tækifæri til atvinnu- og verðmætasköpunar í Stykkishólmi á grunni sjálfbærrar nýtingar auðlinda og styðja verkefnið á grunni þess sem fram kemur í viljayfirlýsingunni. Í þessu verkefni liggja gríðarlega mörg tækifæri fyrir Stykkishólm, svæðið og samfélagið í heild sinni. Hér er um að ræða enn einn liðinn í allri þeirri jákvæðu uppbyggingu sem átt hefur sér stað í Stykkishólmi undanfarin ár. Efnahagslegur og samfélagslegur ábati af fyrirhugaðri starfsemi er augljós, bæði fyrir svæðið og íslenskt samfélag, sem og framtíðar vaxtarmöguleikar og nýsköpun í kringum sjálfbæra auðlindanýtingu Breiðafjarðar. Acadian Seaplants hefur alla burði og þekkingu til að koma á fót og styðja við rannsóknir á efnisinnihaldi þangs með virðisaukandi framleiðslu og nýsköpun að leiðarljósi. Í slíku samstarfi gætu falist enn frekari tækifæri fyrir uppbyggingu virðisaukandi framleiðslu sjávarfangs úr Breiðafirði,“ segir Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar:

„Við hjá Acadian Seaplants erum stolt af því að hefja samstarf við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Stykkishólmsbæ og Veitur. Nálgun okkar á sjálfbæra nýtingu á sjávarplöntum, til að framleiða afurðir sem nýttar eru um allan heim, byggist á rannsóknum okkar og vísindum. Við teljum að aðferðir okkar geti eflt stöðu Íslands á heimsvísu hvað varðar nýtingu á sjávarplöntum. Þetta verkefni mun leiða af sér  sterkari innviði um nýtingu jarðvarma í Stykkishólmi og mun auk þess hafa mikla þýðingu fyrir fyrirtæki okkar og aðra framtíðar atvinnustarfsemi á Snæfellsnesi. 
Við hlökkum til samstarfsins og þökkum stuðning Stykkishólmsbæjar og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins,“ segir  Jean-Paul Deveau, forseti og framkvæmdastjóri Acadian Seaplants Limited. 
 „Við fögnum því að geta stutt við sveitarfélög á veitusvæði Veitna. Það á ekki síst við þegar um er að ræða verkefni sem felast í sjálfbærri nýtingu auðlinda og nýsköpun. Það rímar afskaplega vel við stefnuáherslur fyrirtækisins sem m.a. leggja áherslu á að veitukerfin séu rekin með umhverfissjónarmið og þarfir samfélaga að leiðarljósi. Við hlökkum til að vinna með þessum öflugu samstarfsaðilum og þróa áfram þetta viðskiptatækifæri,“ segir Jóhannes Þorleiksson, forstöðumaður hjá Veitum. 
Á myndinni eru Jóhannes Þorleiksson, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Jakob Björgvin Jakobsson ásamt Jean-Paul Deveau.

Deila: