18 skip á karfa á Reykjaneshrygg

Deila:

Flug­vél Land­helg­is­gæsl­unn­ar, TF-SIF, fór í eft­ir­lits­flug út yfir Reykja­neshrygg fyrir helgina og kannaði skipaumferð á SV-miðum. Alls sáust 16 tog­skip rétt utan við 200 sjómílna lögsögumörkin og voru tvö íslensk skip að veiðum í grenndinni, innan lögsögunnar.

Skipin sem eru þar að karfaveiðum eru frá Rússlandi, Þýskalandi, Spáni, Noregi og Lettlandi. Engar athugasemdir voru gerðar við veiðar þeirra. Aflabrögð hafa verið misjöfn á svæðinu. Það bar vel í veiði hjá einum togaranum sem sagði 35 tonn hafa veiðst eftir 12 klukkustunda tog en áhöfn annars var ekki jafn ánægð með aflann en þar höfðu 20 tonn fengist eftir 18 klukkustunda veiði.

Deila: