Ný Cleopatra 36B til Båtsfjord

87
Deila:

Raymond Bjørkås útgerðarmaður frá Båtsfjord í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan bát frá Batasmiðjunni Trefjum ehf í Hafnarfirði. Báturinn er af gerðinni Cleopatra 36B. Raymond verður sjálfur skipstjóri bátnum, þrír verða í áhöfn bátsins.

Nýi báturinn heitir Frøya. Báturinn er 11 metrar á lengd og mælist 18 brúttótonn. Aðalvél bátsins er af gerðinni Doosan 4V158TIM 600 hestöfl tengd  ZF360IV gír.

Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC og Olex. Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Báturinn er útbúinn til línuveiða. Línubúnaður kemur frá Mustad í Noregi. Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 16 660 lítra kör í lest. Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar. Salerni með sturtu.
Báturinn er kominn til Noregs og er á leið til heimahafnar.

 

Deila: