Mega róa á rauðum dögum

120
Deila:

 

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um strandveiðar árið 2020. Reglugerðin er efnislega samhljóða reglugerð um strandveiðar síðasta árs að öðru leyti en því að lagaheimild ráðherra til að banna strandveiðar á almennum frídögum er ekki nýtt í  þessari reglugerð. Því verður á þessari vertíð strandveiða ekki bannað að stunda veiðar á almennum frídögum.

Nokkrar orðalagsbreytingar eru gerðar frá reglugerð síðasta árs til að auka skýrleika, en reglugerðin byggir á ákvæðum 6. gr. a. í lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða.

Í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu er nú unnið að gerð lagafrumvarps til að bregðast við áhrifum COVID-19 á þá sem stunda strandveiðar og verður það kynnt nánar á næstu vikum.

„Í maí bætist við einn dagur, uppstigningardagur 21. maí.  Í júní bætast við 2 dagar, annar í hvítasunnu sem er fyrsti dagur mánaðarins og þjóðhátíðardagurinn sem nú ber upp á miðvikudag.  Þá bætist við einn dagur í ágúst, frídagur verslunarmanna, mánudagurinn 3. ágúst.

Samkvæmt upplýsingum úr sjávarútvegsráðuneytinu er unnið að gerð frumvarps um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða – ákvæði um strandveiðar.  Landssamband smábátaeigenda bindur miklar vonir við að það tryggi strandveiðar að lágmarki 48 veiðidaga sem hægt verði að nýta yfir lengri tíma en þá 4 mánuði sem verið hefur,“ segir í frétt á heimasíðu LS.

Vakin er athygli á að Fiskistofa opnar fyrir umsóknir um leyfi til strandveiða nk. mánudag.  Fyrsti dagur strandveiða 2020 verður mánudagurinn 4. maí.

 

Deila: