Arnar landar á Króknum

91
Deila:

Frystitogarinn Arnar HU1 landaði á Sauðárkróki í gær  Aflinn í Arnari samsvarar til 824 tonnum af fiski upp úr sjó eða 21.616 kassar og eru aflaverðmætin 215 milljónir.  Heimasíða Fisk Seafood ræddi við Guðmund Henrý skipstjóra:

„Við fórum af stað að morgni 10. apríl eftir að niðurstöður fengust frá Decode vegna Covid-19 sýna áhafnar.  Við byrjuðum á Vestfjarðarmiðum en höfum mest verið á suðvesturmiðum.  Það var mjög rólegt fyrstu tvær vikurnar en svo var aðeins í lokin.  Það er búið að vera fínasta veður mestan hluta veiðiferðarinnar“ segir Guðmundur.

Deila: