Með 1.250 tonn úr Barentshafi

94
Deila:

Frystitogarinn Arnar HU 1 kom til hafnar á Sauðárkróki í vikunni eftir veiðiferð í Barentshafi. Aflinn var um 1.250 tonn upp úr sjó, þar af 1.140 tonn af þorski. Aflaverðmæti er um það bil 450 milljónir króna.

Guðmundur Henry skipstjóri segir að veiðar hafi gengið vel í góðu veðri. Alls voru 5 íslensk skip að veiðum uppfrá og urðu vitni að heræfingu hjá Rússum og sáu menn  mikinn herskipaflota sagði Gummi í samtali á heimasíðu Fisk Seafood.

Deila: