Rússneskur togari á veiðum með sýkta áhöfn

101
Deila:

Tveir rússneskir skipverjar á togaranum Karelia hafa verið lagðir inn á Landssjúkrahúsið í Þórshöfn í Færeyjum vegna Covid-19. Skipverjarnir eru hluti af 77 manna áhöfn togarans en 23 af 30 skipverjum sem voru skimaðir reyndust vera með veiruna. Frá þessu er greint á visir.is

Fyrri skipverjinn sem var lagður inn á sjúkrahús var fluttur á sjúkrahúsið í Klaksvík vegna gruns um lungnabólgu. Þegar í ljós kom að maðurinn reyndist smitaður af kórónuveirunni voru aðrir áhafnarmeðlimir skimaðir.

Átta Færeyingar voru settir í sóttkví eftir að hafa átt samskipti við skipverjana eftir að þeir komu að bryggju. Þó mega skipverjar á rússneskum skipum ekki fara út fyrir ákveðið svæði við skipið þegar þeir koma að bryggju í Færeyjum og því ólíklegt að þeir hafi getað smitað fleiri en þá Færeyinga sem áttu í samskiptum við áhöfnina.

Skipið fór úr höfn frá Fuglafirði rétt fyrir miðnætti á laugardag. Á vef Kringvarpsins segir að togarinn sé nú á leið til veiða á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar, NEAFC svæðinu, fyrir norðan Færeyjar.

Þá hafa yfirvöld í Færeyjum hvatt skipið til þess að snúa aftur til Rússlands vegna smitanna, í ljósi þess hve margir meðlimir áhafnarinnar eru með smitaðir. Fleiri um borð gætu verið smitaðir enda voru aðeins 30 af 70 skimaðir og 23 af þeim með veiruna.

 

Deila: