Dreginn af strandstað

Hollenski bómutogarinn Sursum Corda var í gærkvöldin dreginn af strandstað á sandrifi nálægt Danmörku, Nörre Lyngby ströndinni. Þar hafði hann legið í fastur í viku. Lítil hætta var á ferðum, en tilraunir til að draga hann á flot með tveimur dráttarbátum höfðu ekki gengið fyrr.
Þá var gripið til þess ráðs að fá dýpkunarskip á strandstaðinn til að grafa skurð upp að hinu strandaða skipi tókst þannig að losa togarann seint í gærkvöldi.
Sursum Corda var síðan dreginn áleiðis til Thyborön, þar sem kafarar munu skoða hugsanlegar skemmdir á skipinu.