Fiskkaup kaupa framleiðslukerfi frá Völku

96
Deila:

Fiskkaup hf. og hátæknifyrirtækið Valka efh. undirrituðu á dögunum samning um kaup á hátækni framleiðslukerfi fyrir vinnslu Fiskkaupa við Fiskislóð í Reykjavík. Nýja hátæknivinnslukerfið gerir Fiskkaupum kleift að auka sveigjanleika og fjölbreytni í afurðum ásamt því að bæta alla helstu lykil árangurþætti sem þekkjast í fiskvinnslum segir í tilkynningu frá Völku.

Pökkunarlausnir og framleiðslustjórnunarkerfi

Kerfið sem um ræðir inniheldur þekktar lausnir eins og heilfiskflokkun í bland við allra nýjustu tækni eins og vatnsskurðarvél með þrívíddar-röntgenmyndgreiningu og beingarðsfjarlægingu. Jafnframt er notkun róbóta áberandi í kerfinu eins og í pökkunarlausn Völku, Aligner Packing Robot, sem er mikilvægur hluti fyrir heildarvirkni kerfisins.

Samhliða uppsetningu á tækjunum mun Fiskkaup innleiða RapidFish, allsherjar framleiðslustjórnunarkerfi frá Völku, sem tengist öllum þeim tækjabúnaði sem notaður í vinnslunni sem og öðrum kerfum svo sem bókhaldskerfum. Í kerfinu er mögulegt að setja inn helstu breytur sem hámarka afkomu með notkun fullkominna algríma sem besta skurðarmynstur og pökkun afurða.

„Fiskkaup hefur fylgst grannt með þeirri tæknivæðingu í fiskvinnslunni og þeirri framþróun sem hefur átt sér stað á undanförnum árum. Við ætlum í fullvinnslu afurða, jafnvel alla leið í neytendapakkningar. Það er okkar mat að kerfið frá Völku gefi okkur bestu möguleikana á að ná framþróun í afköstum, gæðum og nýjum afurðum sem er nauðsynlegt. Með þessum kaupum erum við ekki aðeins að stíga skref inn í nútímann heldur búa okkur undir framtíðina,“ segir Ásbjörn Jónsson framkvæmdastjóri Fiskkaupa í fréttatilkynningu.

„Við erum afskaplega þakklát og ánægð með að fá að vinna þetta metnaðarfulla verkefni með eins rótgrónu framleiðslufyrirtæki og Fiskkaupum. Fiskkaup hefur ákveðna sérstöðu í sínu vöruframboði og við lögðum mikla vinnu í að stilla upp heildarkerfi sem myndi henta þeirra þörfum og skila sem mestum ávinningi. Gögn frá hverju tæki fyrir sig geta verið mikilvæg fyrir ákvarðanir seinna í ferlinu. Rapidfish framleiðslutjórnunarkerfið bindur þessi gögn saman, stýrir ferlinu og getur tekið ákvarðanir sem eru manninum ómögulegt. Þannig skapast aukinn ávinningur í heildarkerfinu,“ segir Guðjón Ingi Guðjónsson sölustjóri hjá Völku.
Á myndinni eru Guðjón Ingi Guðmundsson og Ásbjörn Jónsson.

 

 

Deila: