Mun minna af makríl í landhelginni

96
Deila:

Bráðabirgðaniðurstöður leiðangurs rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar sýna að magn makríls í íslenskri landhelgi er mun minna en verið hefur undanfarin ár. Eins mældist minna af kolmunna í ár samanborið við fyrri ár meðan að magn síldar er álíka og undanfarin ár. Í leiðangrinum voru einnig merkt alls 403 hrognkelsi.

Árni Friðriksson er nú á heimleið eftir að hafa lokið þátttöku í árlegum uppsjávarvistkerfisleiðangri í Norðurhöfum að sumarlagi (IESSNS, International Ecosystem Summer Survey in the Nordic Seas) sem hófst 1. júlí. Í leiðangri Árna kringum landið hafa verið teknar 65 togstöðvar og sigldar um 5400 sjómílur eða 10 þúsund km. Þá voru gerðar sjómælingar og teknir átuháfar á flestum togstöðvunum.

Árni rannsakaði útbreiðslu og þéttleika makríls, síldar og kolmunna í íslenskri landhelgi fyrir norðan, norðaustan og sunnan landið meðan að Færeyingar dekkuðu íslensku lögsöguna fyrir austan land og Grænlendingar fyrir vestan (eru ennþá við rannsóknir).

Auk rannsókna á uppsjávarvistkerfinu var umfangsmikil sýnasöfnun úr miðsjávarlögum hafsins suður af Íslandi fyrir tvö alþjóðleg rannsóknaverkefni sem Hafrannsóknastofnun tekur þátt í, SUMMER (https://summerh2020.eu/) og MEESO (https://www.meeso.org/). Það eru bundnar vonir við það að þessi verkefni eigi eftir að skila nýrri og mikilsverðri þekkingu á miðsjávarlífríki Íslandsdjúps og Irminger hafs.

Veður voru óhagstæðari til rannsókna þetta sumarið en áður og höfðu ölduhæð og vindur þannig áhrif á rannsóknirnar í 10 af 28 dögum leiðangursins.

Gögn frá skipunum sex sem taka þátt í leiðangrinum verða tekin saman og greind upp úr miðjum ágúst og niðurstöður þeirrar vinnu síðan kynntar undir lok ágúst.
Ljósmynd Svanhildur Egilsdóttir.

 

Deila: