Týr við störf innan og utan lögsögu

155
Deila:

Varðskipið Týr lagðist að bryggju í Reykjavík í vikunni eftir rúmlega tveggja vikna úthald. Ferðin hófst á Seyðisfirði en alls sigldi skipið rúmar 1500 sjómílur. Áhöfnin á Tý sinnti eftirliti í Síldarsmugunni auk hefðbundinna löggæslustarfa innan íslensku efnahagslögsögunnar.

Farið var í eftirlitsferðir um borð í sex íslensk skip innan og utan lögsögunnar auk þess sem áhöfnin þurfti að hafa afskipti af jafnmörgum skipum vegna ýmiskonar mála. Þar á meðal þurfti að vísa tveimur í land þar sem bátar þeirra voru komnir langt yfir leyfilega útiveru.

Um borð í Tý voru tveir kafarar að þessu sinni. Á bryggjunni á Siglufirði var tækifærið nýtt og köfunaræfing haldin.

Þá voru viðbrögð viðeldsvoða æfð. Öflugri háþrýstidælu með slökkvibyssu var komið fyrir í Loka, léttbát varðskipsins, auk annars búnaðar sem notaður var til slökkvistarfa. Samkvæmt áhöfninni bar báturinn hátt í eitt tonn með búnað og mannskap og gekk á 25 hnútum þrátt fyrir þyngslin. Þá fóru fjölmargar aðrar æfingar fram eins og venja er í hverri ferð.

Myndir: Guðmundur St. Valdimarsson.

 

Deila: