Töluvert um ranga skráningu undirmáls

162
Deila:

Töluvert er um það að fiski sé landað sem undirmálsfiski, án þess að hann sé undir máli. Sem dæmi um það má nefna að af 32 prufum sem teknar voru af Fiskistofu úr afla af landbeittri línu árið 2015 stóðust 22 prufur ekki. Þær sýndu ekkert undirmál.

Þegar undirmálsafli er reiknaður til kvóta gildir hann einungis helminginn af því sem gildir um stærri fisk.  Skylt er að koma með allan afla að landi og það hefur því verið talið æskilegt að koma til móts við þá sem  fá smáfisk í veiðiferð með því að draga einungis helming af kvótanum af bátnum og vinna þannig gegn brottkasti.  Á móti kemur að þetta fyrirkomulag getur skapað freistingu til að skrá stærri fisk sem undirmál og minnka þannig kvótafrádráttinn á móti aflanum.

Eftirlitsmenn Fiskistofu hafa reglulega eftirlit með réttmæti skráningar á undirmálsafla bæði á hafnarvog og í vinnsluhúsum,  þ.m.t. hjá fiskmörkuðum.  Þetta er gert með því að taka prufur úr lönduðum undirmálsafla og athuga hvort flokkunin í undirmál standist þær reglur sem um hana gilda.

Hér að neðan má sjá niðurstöður undirmálsmælinga sem Fiskistofa hefur staðið að á undanförnum 5 árum skipt eftir þeim veiðarfærum sem aflinn veiddist á.  Af litaskiptingu borðanna á myndinni sést hvort landaður afli sem  kannaður var hafi réttilega (blátt) eða ranglega (appelsínugult) verið skráður sem undirmál.

Þarna má lesa bæði hlutfall og fjölda bæði rétt og rangt skráðra tilfella.  Árið 2015 voru t.d. teknar 32 prufur úr undirmálslöndun á afla frá landbeittri línu og af þeim stóðust 22 tilfelli ekki skoðun því ekki var um undirmálsafla að ræða.

Fiskistofa beitir áhættugreiningu af ýmsu tagi til þess að hafa eftirlit með fiskveiðum sem áhrifaríkast.  Þetta er mikilvægur þáttur í því hlutverki Fiskistofu að gæta hagsmuna þjóðarinnar við  ábyrga nýtingu auðlinda hafsins. Fiskistofa hyggst á næstunni birta frekari upplýsingar um löndun og skráningu  á undirmálsafla, m.a. verða þar upplýsingar um  hvernig slíkar landanir skiptast milli hafna.

Rétt skráning undirmálsafla

  • Skipstjóra fiskisskips ber að tryggja að réttar og fullnægjandi upplýsingar um aflann berist til hafnarvigtarmanns.
  • Mörk á undirmálsfiski eru mismunandi eftir tegundum, sbr. töfluna hér að neðan.
  • Ef á bilinu 1 til 10% af afla sem skráður er sem undirmál reynast vera yfir viðmiðunarmörkum  sendir  veiðieftirlit Fiskistofu viðkomandi leiðbeiningarbréf og tilkynningu um að skráning alls aflans sem um ræðir verði leiðrétt þannig að hann teljist ekki undirmálsfiskur.
  • Ef meira en 10%  fisks í undirmálsafla reynist vera stærri en viðmiðunarmörkin má vænta þess að  úr verði brotamál sem getur leitt til sviptingar veiðileyfis.

 

 

Deila: