Fyrsta loðnan síðan 2018

85
Deila:

Grænlenska skipið Polar Amaroq fékk 20-30 tonn af loðnu í gærkvöldi í trollhólfinu austur af landinu en það er fyrsta loðnan sem veiðist hér við land frá árinu 2018. Tekið var eitt hol í leiðindaveðri. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Sigurð Grétar Guðmundsson skipstjóra.

„Við prufuðum að kasta í gær rétt áður en dimmdi en veðrið var afskaplega leiðinlegt. Við leituðum síðan í nótt en það er bara ekkert veiðiveður. Við fengum um 20-30 tonn af stórri loðnu en það er töluverð áta í henni. Við munum frysta aflann um borð. Það er bullandi bræla og ég held að sé ekkert annað að gera en að leita vars,“ segir Sigurður.
Útgefinn loðnukvóti Polar Amaroq er 1155 tonn.
Ljósmynd Hákon Ernuson.

 

Deila: