DNB banki ekki ákærður í Samherjamálinu

105
Deila:

Rannsókn á aðkomu norska viðskiptabankans DNB að viðskiptum Samherja og meintra mútubrota fyrirtækisins í Namibíu hefur verið lögð niður. Verður bankinn því ekki ákærður í málinu samkvæmt frétt á visir.is.

Norski fjölmiðillinn e24 greinir frá þessu, en þáttur DNB var mikið ræddur eftir að málið kom upp og fór svo að bankinn sleit viðskiptum sínum við Samherja.

Í tilkynningu frá DNB til norsku kauphallarinnar segir að bankinn hafi fengið boð frá saksóknara í Noregi um að rannsóknin hafi ekki leitt í ljós neinar upplýsingar sem gætu leitt til ákæru gegn einstaka starfsmönnum bankans.

Rannsókn efnahagbrotadeildar norsku lögreglunnar hófst 2019 og er haft eftir Thomas Midteide, samskiptastjóra DNB, að bankinn hafi afhent lögreglu öll umbeðin gögn.

Málið allt má rekja til þess að gögnum var á sínum tíma lekið til Wikileaks þar fram komu upplýsingar um að namibískir embættismenn hafi þegið mútur frá starfsmönnum Samherja í skiptum fyrir makrílkvóta.

 

Deila: