Viðmiðun í línuívilnun breytt

105
Deila:

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur undirritað reglugerð um breytingu á reglugerð um línuívilnun.  Breytingin afturkallar fyrri ákvörðun um að línuívilnun falli niður frá og með 12. febrúar.

Ekkert rof verður á ívilnuninni þar sem tímabilunum hefur verið breytt með reglugerðinni.  Í stað þess að II. tímabil gildi til loka febrúar, kveður reglugerðin á um að tímabilinu hafi lokið í 11. febrúar og þann 12. hefjist III. tímabil sem gildir út maí.

 

 

Deila: