Ágætis afli hjá Gullver
![](https://audlindin.is/wp-content/uploads/2021/04/Gullver-landar-apríl-2021.png)
Í gær var landað úr ísfisktogaranum Gullver NS á Seyðisfirði. Skipið kom til hafnar aðfaranótt laugardags en vegna páskahátíðarinnar var beðið með löndunina. Skipstjóri í veiðiferðinni var Þórhallur Jónsson og segir hann að hún hafi gengið vel.
„Aflinn var um 116 tonn og fékkst hann á fjórum sólarhringum eða svo. Uppistaða aflans var þorskur. Við vorum að veiðum í Hvalbakshallinu í ágætis veðri og vorum komnir til hafnar fyrir páskahretið,“ segir Þórhallur í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Gullver hélt til veiða á ný í gærkvöldi.