LS semur við Morenot
Landssamband smábátaeigenda hefur gert samning við Morenot (Sjóvélar) um afslátt til félagsmanna á vörum í netverslun fyrirtækisins. Mørenot sérhæfir sig í vörum fyrir handfæra- og línuveiðar svo sem línum, krókum, línuspilum, færavindum, ásamt miklu úrvali af sjófatnaði.
„Félagsmenn eru hvattir til að nýta sér þá þjónustu sem MORENOT býður þeim. Senda tölvupóst eða slá á þráðinn. Þegar gengið hefur verið frá pöntun er kóði LS sleginn inn og færist þá afsláttur sem veittur er á viðkomandi pöntun,“ segir í frétt frá LS
Myndin er tekin í höfuðstöðvum LS í Reykjavík þar sem samningurinn var undirritaður.