Bjóða út lengingu Sundabakka

Hafnir Ísafjarðarbæjar óska eftir tilboðum í verkið lenging Sundabakka. Verkið felst í byggingu um 380 m stálþilskants ásamt kantbita, pollum og stigum. Verkinu skal lokið upp úr miðju næsta ári.
Helstu magntölur:
- Reka niður 254 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ28-750 og ganga frá stagbitum og stögum.
- Steypa 99 akkerissplötur
- Steypa um 380m langan kantbita með pollum, kanttré og stigum.
- Jarðvinna, fylla upp fyrir innan þil um 28.200 m³.
Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu og skal þeim skilað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. maí 2021.