Varðskipin og Baldur saman í Djúpinu

387
Deila:

Varðskip Landhelgisgæslunnar og sjómælingabáturinn Baldur eru sjaldnast á sama tíma á sama stað nema þegar skipin liggja bundin við bryggju í Reykjavík yfir jól og áramót eða á milli eftirlitsferða.

Sérstakar aðstæður vegna mismunandi verkefna skipanna urðu til þess að varðskipin og sjómælingabáturinn Baldur mættust á Ísafjarðardjúpi og við það tilefni var tekin mynd af öllum flotanum. Áhöfnin á Tý var við eftirlitsstörf á miðunum, áhöfnin á Þór var í árlegu vitaverkefni í samstarfi við Vegagerðina og áhöfnin á Baldri var við mælingar í Djúpinu.

Guðmundur St. Valdimarsson, bátsmaður á Tý, lét slíkt tækifæri ekki úr greipum ganga og tók þessa frábæru mynd af skipaflota Landhelgisgæslu Íslands. Þá tók Sævar Már Magnússon, bátsmaður á Þór, tók glæsilegar myndir úr lofti af flotanum.

 

Deila: