Aukið virði útfluttra sjávarafurða

102
Deila:

Fluttar voru út vörur fyrir 68,6 milljarða króna fob í júlí 2021 og inn fyrir 84,7 milljarða króna cif (78,4 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í júlí, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 16,1 milljarð króna samkvæmt frétt Hagstofu Íslands.

Til samanburðar voru vöruviðskiptin reiknuð á fob/cif-verðmæti óhagstæð um 18,8 milljarða króna í júlí 2020 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í júlí 2021 var því 2,7 milljörðum hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 170,8 milljarða króna sem er 7,8 milljarða króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 15% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í júlí 2021 jókst um 21,9 milljarða króna, eða um 46,8%, frá júlí 2020, úr 46,8 milljörðum króna í 68,7 milljarða. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 17,6 milljarða króna, eða 70,7% samanborið við júlí 2020, og munar þar mest um aukið útflutningsverðmæti áls og kísiljárns. Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um 2,1 milljarð, eða um 11%, og munar þar mestu um aukið verðmæti uppsjávarfisks.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá ágúst 2020 til júlí 2021, var 690,4 milljarðar króna og hækkaði um 90,1 milljarð króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 15% á gengi hvors árs.. Iðnaðarvörur voru 48% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði og var verðmæti þeirra 13,5% meira en á tólf mánaða tímabili þar á undan. Sjávarafurðir voru 42% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 14,2% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 9,7 milljarða, eða 36,8%, á sama tímabili og var um 5% af heildarútflutningsverðmæti síðustu tólf mánaða.

Deila: