Áhöfn Páls Pálssonar í sóttkví

103
Deila:

Með hraðprófi fyrir Covid-19 sýkingu greindist skipverji á Páli Pálssyni ÍS jákvæður í gær. Beðið er niðurstöðu úr PCR prófi sem væntanleg er í dag, föstudag. Þar til niðurstaða liggur fyrir er áhöfnin í sóttkví. Á sama hátt hefur annar starfsmaður í landi einnig verið greindur jákvæður með hraðprófi og hluti starfsfólks farið í sóttkví þar til niðurstaða liggur fyrir úr PCR greiningu í dag. Af þeim sökum verður skrifstofa fyrirtækisins í Hnífsdal lokuð í dag.

Deila: