Mestum afla landað í Neskaupstað í fyrra

115
Deila:

Samkvæmt gögnum frá Hagstofunni var mestum fiskafla á landinu landað í Neskaupstað á árinu 2020. Á árinu var 163.953 tonnum landað í Neskaupstað en þar er að mestu um uppsjávartegundir að ræða. Þá er Neskaupstaður í þriðja sæti hafna ef horft er á verðmæti landaðs afla. Verðmæti þess afla sem landað var í Neskaupstað á árinu nam rúmlega 11,5 milljörðum króna.

Eftirfarandi tíu hafnir tóku á móti mestum afla árið 2020:

LöndunarhöfnMagn (tonn)
Neskaupstaður163.953
Vestmannaeyjar100.766
Eskifjörður94.880
Vopnafjörður93.744
Reykjavík62.435
Grindavík46.762
Hornafjörður42.489
Fáskrúðsfjörður35.099
Þórshöfn34.205
Siglufjörður32.149

Eftirfarandi tíu hafnir voru með mest aflaverðmæti á árinu 2020:

LöndunarhöfnVerðmæti (þúsundir kr)
Reykjavík17.155.644
Grindavík12.148.198
Neskaupstaður11.505.670
Vestmannaeyjar11.433.329
Siglufjörður9.023.025
Sauðárkrókur6.388.414
Ísafjörður5.048.218
Hafnarfjörður4.725.615
Eskifjörður4.723.722
Hornafjörður4.666.172
Ljósmynd Þorgeir Baldursson
Deila: