Hvalreki á Álftanesi

230
Deila:

Nokkur fjöldi fólks hefur gert sér ferð í fjöruna á Álftanesi í morgun til að skoða hvalhræ sem liggur þar í fjörunni. Lögreglan hefur sett gulan borða við hvalinn en fólk fer áhyggjulaust að hvalnum, strýkur honum og lyktar. Frá þessu er greint á visir.is

Talið er að um sé að ræða skíðishval sem er yfirtegund fjórtán mismunandi hvalategunda. Vísindamenn stefna á að skera úr um aldur og tegund hvalsins á morgun þegar sýni verður jafnframt tekið úr hræinu.

Guðbrandur Örn Arnarson hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg sagði fréttastofu í gær að flókið ferli taki við þegar hvalur finnist á landi og málið sé nú komið í farveg hjá Hafrannsóknarstofnun, Umhverfisstofnun, heilbrigðiseftirlitinu, lögreglu og fleiri aðilum.

Deila: