Steiktur þorskur með tartarsósu
Nú höfum við þetta einfalt og gott. Steikjum þorsk og sjóðum kartöflur. Einfaldur og auðveldur réttur.
Innihald:
- 800g þorskur roð- og beinlaus skorinn í aflanga litla bita
- ½ bolli hveiti
- 2 egg, pískuð
- 1 bolli brauðraspur
- 1 tsk. salt
- 2 hvítlauksgeirar, marðir
- Olía til steikingar
Aðferðin:
Sláið eggin saman og blandið saman brauðraspi, salti og hvítlauk. Veltið fiskbitunum upp úr hveitinu, síðan eggjahrærunni og loks raspinum og gætið þess að hylja bitana vel.
Hitið olíu á stórri pönnu upp að 180°C steikið fiskibitana uns þeir eru orðnir fallega giltir. Við mælum með soðnum kartöflum, fersku salati og tartarsósu með fiskinum.