Undirrituðu samstarfssamning

106
Deila:

Þorsteinn Sigurðsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar og Oddur M. Gunnarsson forstjóri Matís hafa skrifað undir samstarfssamning til að styrkja og efla samstarf stofnananna um rannsóknir og samnýtingu innviða.

„Lykilstoðir farsæls árangurs í vísindum og nýsköpun er gott aðgengi að rannsóknarinnviðum og skapar aukið samstarf án efa veruleg tækifæri fyrir báða aðila á tímum mikilla áskoranna, t.d í fiskeldi, erfðafræði og vegna umhverfisbreytinga á norðurslóðum.

Gott samstarf stofnananna hefur um langan tíma átt sér stað, allt frá þeim árum sem þær deildu saman húsnæði að Skúlagötu 4 í Reykjavík. Þá hefur einnig mikil og góð samvinna átt sér stað milli Matís og Sjávarútvegsskóla GRÓ sem Hafrannsóknastofnun heftur hýst í fjölda ára. Samningurinn formfestir það góða samstarf auk þess að skapa frekari tækifæri í rannsóknum hafs og vatna,“ segir í frétt frá stofnunum.

Deila: