Loðnan breytir miklu

103
Deila:

Mikil úthlutun loðnukvóta raskar verulega röðun útgerða, sem hafa yfir að ráða mestum aflaheimildum af heildinni. Þannig fer Brim yfir leyfilegar heimildir sem eru 12% og fyrirtæki, sem engar heimildir hafa til loðnuveiða falla neðar á listann, en þau sem þeirra njóta. Nú eru Ísfélagið og Síldarvinnslan komin í annað og þriðja sætið á eftir Brimi. Fyrirtækin sem hafa verið með mestar heimildir í þorski lækka á listanum, enda var þorskkvótinn skorinn niður um 13%.

Fiskistofa hefur tekið saman samanlagða aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila og lögaðila. Samkvæmt útreikningum Fiskistofu fer eitt félag yfir 12% leyfilegt heildarverðmæti aflahlutdeildar allra tegunda, Brim hf. 13,2%. Í krókaaflamarkskerfinu fara tvö félög yfir 4% leyfilega aflahlutdeild í þorski, Háaöxl ehf. 4,22% og Stakkavík ehf. 4,01%.

Í meðfylgjandi skjölum má sjá alla aðila sem eiga fiskiskip með skráðar aflahlutdeildir. Líkt og undanfarin ár þá er Brim hf. hæst í aflamarkskerfinu en einhver breyting hefur orðið á næstu sætum sem skýrist af því að úthlutun í loðnu var búin þegar útreikningarnir fóru fram. Í krókaaflamarkskerfinu er Grunnur ehf. með mestu krókaaflahlutdeild.

Aflahlutdeildir útgerða í aflamarkskerfinu 

Krókaaflahlutdeildir útgerða í krókaaflamarkskerfinu

Á myndinni hér að neðan má sjá yfirlit yfir fjölda útgerða sem ráða yfir hlutdeildum frá fiskveiðiárinu 2005/2006 til og með fiskveiðiárinu 2020/2021. Á stöplaritinu sést að útgerðum með aflahlutdeildum hefur fækkað á hverju ári frá 2005/2006 en á fiskveiðiári 2019/2020 fjölgaði þeim úr 442 í 711. Þessi fjölgun skýrist af hlutdeildasetningu á hlýra og makríl. Á þessu fiskveiðiári fækkar úr 691 í 664. Línuritið á myndinni sýnir heildarúthlutun aflamarks í þorskígildum 1. september ár hvert.

Hér má sjá töflur frá 1. september 2020 yfir þær útgerðir sem þá réðu yfir mestum aflaheimildum:

Aflahlutdeild 1. september 2020 – 100 stærstu

Krókaaflahlutdeild  1. september 2020 – 50 stærstu

Deila: