Gert klárt fyrir loðnuvertíð

98
Deila:

Bjarni Ólafsson AK liggur í Norðfjarðarhöfn og þar er verið að gera skipið klárt fyrir loðnuvertíð. Runólfur Runólfsson skipstjóri segir að vinnan gangi vel og menn séu spenntir að halda til veiða.

„Ég geri ráð fyrir að við siglum suður til Reykjavíkur á morgun en loðnunótin er þar. Nótin verður væntanlega tekin um borð á mánudagsmorguninn og síðan verður haldið rakleiðis til veiða úti fyrir Norðurlandinu. Það skiptir máli að hefja veiðar sem fyrst ef allur sá kvóti sem úthlutað hefur verið á að nást. Menn verða að halda mjög vel á spilunum til að ná kvótanum og nauðsynlegt verður að veiða drjúgan hluta hans fyrir áramót.

Stóra spurningin í þessu öllu saman er veðrið. Það viðrar oft ekkert sérstaklega vel þarna fyrir norðan á þessum árstíma og veðurútlitið fyrir næstu viku er ekki gott. Menn verða hins vegar að vera á staðnum og grípa tækifærin í veðurgluggum þegar þau gefast. Það veiðist ekkert ef menn eru ekki til staðar. Þetta mun allt koma í ljós og það þýðir ekkert annað en vera bjartsýnn,“ segir Runólfur í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Danska uppsjávarskipið Ísafold mun koma á loðnumiðin norður af landinu síðar í dag en það má einungis veiða í grænlenskri lögsögu.
Ljósmynd Smári Geirsson.

Deila: