Aflahlutdeild krókabáta 17,5%

139
Deila:

Landssamband smábátaeigenda átti 36 ára afmæli í gær. Það var atofnað5 desember 1985. Við stofnun LS var afli smábáta um 20 þúsund tonn. Á síðasta fiskveiðiári veiddu smábátar 85,5 þúsund tonn sem skilaði 26 milljörðum í aflaverðmæti og útflutningsverðmæti var tvöföld sú upphæð.

Þessa áfanga er minnst á heimasíðu LS og segir þar ennfremur:
„1. janúar 1991 komu til framkvæmda ákvæði í lögum um stjórn fiskveiða þar sem kveðið var á um að allir smábátar 6 brl. og stærri voru kvótasettir (950 alls).  Aðrir smábátar (1.100 alls) fengu aðlögunartíma til 1. september 1994 að ávinna sér aflaheimildir til kvóta þar sem hlutdeild þeirra var 2,18% – krókabátar. 1. september 2021 var aflahlutdeild krókabáta til þorskveiðiheimilda 17,5%.

Deila: