Hoffell með mest af kolmunna

243
Deila:

Veiðum á kolmunna er nú lokið á þessu ári. Aflinn varð 186.352 tonn, en leyfilegur heildarafi okkar Íslendinga er 202.121 tonn. Óveidd eru því 15.769 og má gera ráð fyrir að það flytjist yfir á næsta á. Þá þessu ári voru yfirfærð 8.041 tonn frá síðasta ári.

Aflahæsta skipið á kolmunnanum er Hoffell SU, skip Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði með 24.194 tonn. 17 skip stunduðu beinar veiðar á kolmunna og 10 þeirra voru með meira en 10.000 tonn. Auk Hoffells eru það Beitir NK með 19.591 tonn, Barði NK með 15.754 tonn, Aðalsteinn Jónsson SU með 15.115 tonn, Bjarni Ólafsson AK með 14.931 tonn, Jón Kjartansson SU með 14.668 tonn, Guðrún Þorkelsdóttir SU með 12.894 tonn, Vilhelm Þorsteinsson EA með 12.630 tonn, Víkingur AK með 11.690 tonn og Venus NS með 11.536 tonn.

Deila: