Lögreglurannsókn hætt

Deila:

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum er hættur að rannsaka meint lögbrot Arctic Sea Farm ehf. vegna slysasleppingar á laxi í Patreksfirði í ágúst. Lögreglustjórinn greinir frá þessu á Facebook og segir þar að rannsóknin hafi hafist með kæru Matvælastofnunar 13. september. Framkvæmdastjóri Arctic Fish hafði réttarstöðu sakbornings á meðan rannsókn málsins stóð.

„Með bréfi lögreglustjóra 19. desember var rannsókn hætt, þar sem ekki er talinn grundvöllur til að halda henni áfram, þar sem talið var að gögn málsins bæru ekki með sér að umbúnaður við kvínna hafi verið áfátt vegna athafna eða athafnaleysis sakbornings og sakir séu miklar, í skilningi 22. gr. sömu laga, eins og áskilið er,” segir í færslunni.
Deila: