Mannbjörg þegar sómi sökk við Garðskaga

Deila:

Strandveiðimanni var bjargað úr sjónum norðvestan við Garðskagavita á þriðja tímanum í nótt, þegar ársgmall 10 metra sómabátur sökk. Báturinn, Hadda  HF, var á leið frá Sandgerði út á miðin. Maður á öðrum strandveiðibáti sýndi mikið snarræði og bjargaði skipverjanum úr sjónum og fór með hann til hafnar. Maðurinn var að sögn kominn í björgunarbúning en var orðinn kaldur. Sjúkrabíll beið hans á bryggjunni.

Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir: „Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarkall frá skipstjóra annars strandveiðibáts klukkan 02:42 þess efnis að bátur í grenndinni væri að sökkva um 6 sjómílur norðvestur af Garðskagavita. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út á hæsta forgangi ásamt sjóbjörgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum. Þá voru nálæg fiskiskip og bátar beðin um að halda á staðinn.

Skömmu eftir að neyðarkallið barst Landhelgisgæslunni hafði tilkynnandi aftur samband og tjáði varðstjórum í stjórnstöð að hann væri búinn að bjarga manninum úr sjónum en bátsverjanum tókst að komast í björgunargalla áður en bátur hans sökk. Maðurinn var kaldur eftir veruna í sjónum og var ákveðið að sjúkrabíll biði hans á bryggjunni á Sandgerði. Sá sem bjargaði manninum sigldi með hann þangað. Báturinn marar í hálfu kafi og munu sjóbjörgunarsveitir Landsbjargar freista þess að draga hann til hafnar.

Landhelgisgæslan vill koma á framfæri sérstökum þökkum til skipstjóra strandveiðibátsins sem sýndi mikið snarræði við björgun mannsins og einnig til annarra viðbragðaðila sem brugðust við með skjótum og fumlausum hætti.”

Björgunarbáti tókst að draga bátinn sem sökk til hafnar. Ljóst er af ummerkjum að leki hefur komið að bátnum eftir mikið högg. Á vef Fiskifrétta kemur fram að flutningaskipi, sem var á vettvangi á sama tíma, hefur verið beint til hafnar til skýrslutöku. „Þegar Landhelgisgæslan fór að skoða feril skipanna í nótt kom í ljós að flutningaskip og þessi strandveiðibátur voru á sömu slóðum á sama tíma. Vegna þess ákvað Landhelgisgæslan að beina þessu skipi til hafnar í Vestmannaeyjum til skýrslutöku,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. „Fulltrúar Samgöngustofu, Gæslunnar og rannsóknarnefndar samgönguslysa munu sömuleiðis fara til Eyja,“ er haft eftir Ásgeiri í fréttinni.

Sómabáturinn var á um 19 mílna hraða þegar óhappið varð, samkvæmt ferli á Marinetraffic.com. Báturinn hafði siglt í um 30 mínútur frá Sandgerði.

Meðfylgjandi mynd er úr safni.

Deila: