1.150 tonn af þorski fengust fyrir makrílinn

Fiskistofa hefur lokið úrvinnslu á tilboðum sem bárust í aflamarksskipti í júní. Frá þessu greinir á vef stofnunarinnar. Þar segir að alls hafi borist 33 tilboð og að þessu sinni hafi 8 tilboðum verið tekið að hluta til eða að fullu. Alls var tilboðum tekið sem hljóða upp á 6500 tonn af makríl. Fyrir þessi tonn fengust um 1.150 tonn af þorski.
Óljóst er hvað verður um þessar aflaheimildir í þorski. Þess eru dæmi að ráðherra hafi bætt þeim við heimildir í strandveiðum.
Skip númer | Nafn | Kaup tegund | Magn tonn | Greiðslu tegund | Magn kg |
2983 | Börkur NK 122 | Makríll | 1.000.000 | Þorskur | 250.241 |
2983 | Börkur NK 122 | Makríll | 1.000.000 | Þorskur | 225.341 |
2983 | Björkur NK 122 | Makríll | 1.000.000 | Þorskur | 212.041 |
1277 | Ljósafell SU 70 | Makríll | 250 | Þorskur | 51.02 |
1277 | Ljósafell SU 70 | Makríll | 250 | Þorskur | 49.02 |
2929 | Aðalsteinn Jónsson SU 11 | Makríll | 1.000.000 | Þorskur | 192.308 |
2983 | Börkur NK 122 | Makríll | 1.000.000 | Þorskur | 186.341 |
2949 | Jón Kjartansson SU 111 | Makríll | 965.947 | Þorskur | 176.471 |