Hafró kortlagði búsvæði

Vísindafólk á vegum Hafrannsóknastofnunar hefur nýlokið leiðangri í kortlagningu búsvæða. Frá þessu segir á vef Hafró. Þar segir að markmiðið hafi verið að kortleggja samfélög og búsvæði botndýra á landgrunnsbrúninni suður og austur af Íslandi.
„Alls voru tekin 75 snið með neðansjávarmyndavél á 60 til 285 m dýpi. Svæðið sem farið var yfir var 22.000 ferkílómetrar. Ólík búsvæði og samfélög sáust á mismunandi botngerðum. Fjölmargar tegundir hryggleysingja sáust auk sæfjarðragarðar og möttuldýrabreiður. Upplýsinar sem safnast í leiðangrinum munu auka þekkingu á vistkerfum hafsbotnsins við Ísland,” segir í fréttinni. Myndin er frá Hafró.