Grásleppan fer í kvóta

Deila:

Frumvarp um kvótasetningu grásleppu var samþykkt á Alþingi fyrir helgi. Um tíma var óvíst hvort frumvarpið næði fram að ganga fyrir þinglok en samkomulag náðist um málið fyrir helgi.

Tilgangur frumvarpsins er að sögn að auka fyrirsjáanleika við grásleppuveiðar og tryggja betur sjálfbærar og markvissar veiðar. Gagnrýnendur hafa sagt að veiðiheimildirnar muni ganga kaupum og sölum og á endanum rata í fang stórútgerðarinnar – en nokkrar af stærri útgerðum landsins reka vinnslu á grásleppuhrognum. Þá hefur verið bent á að með þessu verði nýliðun í greininni afar þung.

Lilja Rafney Magnúsdóttir, fyrrverandi þingkona Vinstri grænna, sagði sig úr flokknum í kjölfar þessasrar ákvörðunar og sagði flokkinn hafa svikið sjávarútvegsstefnu sína.  „VG er að færa grásleppuna yfir í gjafakvótakerfið í nafni sérhagsmuna og almannahagsmunir og stjórnarskrávarin atvinnuréttindi eru fótum troðin,“ sagði hún í viðtali við BB.

Deila: