Fjörutíu ungmenni ráðin í sumarafleysingar

Deila:

Um fjörutíu ungmenni eru ráðin til starfa í vinnsluhúsi Útgerðarfélags Akureyringa á Akureyri í sumar til að leysa af fastráðið starfsfólk vegna sumarleyfa. Starfsmenn vinnsluhússins eru að jafnaði um eitt hundrað og tuttugu, þannig að hlutfall sumarstarfsfólks er nokkuð hátt þessar vikurnar. Um þetta er fjallað á vef Samherja. Þar er rætt við Sunnevu Ósk Guðmundsdóttur framleiðslustjóra, sem er ánægð með ráðningarnar.

„Það er alltaf töluverð ásókn í sumarstörfin og því miður ekki hægt að verða við öllum umsóknum. Flest sem sækja um vinnu hafa kynnt sér starfsemina og vita ágætlega að hverju þau ganga. Áður en þessir nýju starfsmenn hefja störf er efnt til nýliðafræðslu, þar sem farið er yfir helstu þætti starfseminnar og spurningum svarað. Án sumarafleysingafólksins væri líklega ekki hægt að halda úti fullri starfsemi svo þessir starfsmenn eru mikilvægir. Þetta er upp til hópa hörku duglegt fólk, auk þess sem launin hérna eru líklega talsvert hærri en gengur og gerist hjá ungu fólki.“

Nánar er fjallað um ráðningarnar á vef Samherja.

Myndin er úr vinnslunni á Dalvík.

Deila: