Leita ákaft að makríl

Deila:

Makrílveiðin hefur verið ærið misjöfn að undanförnu að því er greint er frá á vef Síldarvinnslunnar. Þar segir að oft finnist enginn fiskur en að hann birtist svo í blettum og þá sé hægt að veiða. Undanfarna daga hafi íslenski makrílflotinn verið að leita með hverfandi árangri. Bæði hafi verið leitað í íslenskri lögsögu og í Smugunni. Hafa skuli í huga að makrílveiði íslenskra skipa hafi gjarnan lokið í byrjun september á síðustu árum.

Margrét EA kom með 450 tonn af makríl til Neskaupstaðar í gær. Um er að ræða afar fallegan fisk. Oddur Einarsson, yfirverkstjóri í fiskiðjuverinu, segir að nú upp á síðkastið hafi makríllinn verið einstaklega gott hráefni. „Fiskurinn er stór og stæðilegur og feitur og pattaralegur. Þá er afar lítil áta í honum. Það er vart hægt að hugsa sér betra hráefni. Nú er mest heilfryst og síðan er einnig hausað og flakað. Staðreyndin er sú að nú fer að líða að lokum makrílvertíðar ef miðað er við síðustu ár og þá tekur síldarvertíð við. Við fengum fyrsta síldarfarminn til vinnslu í fyrra einmitt um þetta leyti ágústmánaðar. Það hafa þegar borist góðar síldarfréttir frá skipunum,” segir Oddur.

Deila: