Aðgerðaáætlun vegna matvælastefnu Íslands

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, matvælaráðherra, hefur gefið út aðgerðaáætlun vegna matvælastefnu Íslands. Alþingi samþykkti matvælastefnu til ársins 2040 í júní 2023 með það að markmiði að vera leiðbeinandi við ákvarðanatöku til að stuðla að aukinni verðmætasköpun í matvælaframleiðslu, tryggja fæðu- og matvælaöryggi, og bæta velferð fólks í sátt við umhverfi og náttúru.
Í þessari stefnumörkun er gert ráð fyrir sértækum aðgerðaáætlunum á einstökum málefnasviðum sem eru:
- – Aðgerðaáætlun Lands og lífs – landgræðsluáætlun og landsáætlun í skógrækt 2022-2026,
- – Aðgerðaáætlun landbúnaðarstefnu (í vinnslu),
- – Aðgerðaáætlun stefnu um uppbyggingu og umgjörð lagareldis (í vinnslu),
- – Aðgerðaáætlun sjávarútvegsstefnu (í vinnslu).
Auk þess inniheldur stefnan fimm aðgerðir sem liggja þvert á aðrar undirstefnur og hefur vinna við þær þegar hafist eða ákvörðun verið tekin um útfærslu þeirra. Þessir liðir eru að mestu eða öllu leyti fjármagnaðir og eru eftirfarandi:
- – Söfnunarkerfi fyrir dýraleifar,
- – Stöðumat markmiða um verndun líffræðilegrar fjölbreytni,
- – Mótun aðgerða um neyðarbirgðahald á matvælum og nauðsynlegum aðföngum vegna matvælaframleiðslu,
- – Samræming matvælaeftirlits,
- – Mæling árangurs af stuðningi Matvælasjóðs.
Aðgerðaáætlunin tekur til næstu fimm ára og verður endurskoðuð árlega og uppfærð gerist þess þörf. Í febrúar 2024 var áætlunin í opnu samráði á Samráðsgátt stjórnvalda, og bárust 18 umsagnir sem var tekið tillit til eftir fremsta megni. Þær umsagnir verða einnig hafðar til hliðsjónar við árlega yfirferð áætlunarinnar, að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins.