Fiskvinnsluhús Samherja á Davlík verðlaunað

Samherji hlaut íslensku sjávarútvegsverðlaunin fyrir að hafa reist eitt fullkomnasta fiskvinnsluhús í heimi. Þetta kemur fram á vef Samherja en verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi síðastliðinn iðvikudag.
„Samherji reisti eitt fullkomnasta fiskvinnsluhús heims á Dalvík, þar sem fyrirtækið framleiðir hágæða afurðir fyrir alþjóðlega markaði,“ segir í tilkynningu frá Ice Fish um verðlaunin sem afhent voru Samherja. Íslenska sjávarútvegssýningin 2024, Ice Fish 2024, fór fram í nýliðinni viku. Að þessuu sinni mættu sýnendur frá rúmlega 20 þjóðlöndum.
„ Við erum afskaplega stolt af þessum verðlaunum. Um þessar mundir eru fjögur ár síðan við hófum vinnslu í nýja húsinu og fullyrðum að um sé að ræða eina fullkomnustu bolfiskvinnslu í heiminum. Búnaðurinn er að mestu íslenskur og hönnun og útfærsla á mörgum þáttum starfseminnar er ný af nálinni. Húsið hefur vakið verðskuldaða athygli víða um heim og þessi verðlaun undirstrika að okkur hefur greinilega tekist vel til,“ segir Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu á vef Samherja.
Ljósmynd: Fv.: Guðbjörg Ósk Sveinsdóttir gæðastjóri Samherja, Marianne Rasmussen-Coulling, framkvæmdastjóri IceFish 2024, Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja / myndir Birgir Ísleifur Gunnarsson/samherji.is