Filippeyskt matar- og skemmtikvöld

Deila:

Starfsmannafélag Útgerðarfélags Akureyringar hélt filippseyskt matar- og skemmtikvöld síðastliðinn laugardag. Fram kemur á vef Samherja að nærri þrjátíu manns starfi hjá Samherja sem reki uppruna sinn til Filippseyja.

Haft er eftir Bethsaida Rún Arnarsyni, sem starfað hefur hjá ÚA í um 30 ár og er trúnaðarmaður Einingar-Iðju, að þetta hafi verið sérstaklega vel heppnað.

„Við hjálpuðumst öll að og skiptum með okkur verkum. Undirbúningurinn hefur staðið yfir í nokkrar vikur, svo sem að æfa þjóðdansa, skipuleggja matarhlaðborðið og fleira. Við hófumst handa við að skreyta salinn eftir vinnu á föstudaginn og markmiðið var að gera hann sem glæsilegastan, þannig að gestirnir hefðu það á tilfinningunni að vera komnir til Filippseyja. Snemma á laugardagsmorgninum var svo byrjað á eldamennskunni og öðrum undirbúningi fyrir veisluna. Þetta tókst allt saman vel og allt var orðið klárt þegar fyrstu gestirnir komu.“

Nánar er fjallað um þennan skemmtilega menningarviðburð hér.

Myndin er af vef Samherja.

Deila: