Vinnur að lausn fyrir Grímseyinga

Matvælaráðherra vinnur að því að endurskoða ákvörðun um að skylda Grímseyingar til að vinna byggðakvóta á staðnum. Útgerðarmenn í eynni fengu nýlega þær upplýsingar á undanþága frá vinnsluskyldu yrði ekki endurnýjuð. Í kjölfar fregnanna voru amk. fjögur íbúðarhús í eynni auglýst til sölu.
RÚV hefur eftir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra að spretthópur hafi verið stofnaður til að vinna að lausn málsins. „Ég tel að það sé mikill vilji til þess að bregðast við því öll viljum við nú helst halda byggð um allt land. Mínir sérfræðingar eru bara að skoða hvort við getum brugðist við og erum í samtali við byggðastofnun og þá aðila sem að þessu koma“ er haft eftir henni.
Hún lofar því að lausnin muni liggja fyrir hratt og örugglega. Hún segir að lausn verði fundin en koma verði í jós hvort Grímseyingum hugnast hún.
Hér fyrir neðan má sjá auglýsingu frá einum útgerðarmanninum í Grímsey.